Yfirlit

Hætta sem tengist svartolíunotkun á Norðurskautssvæðinu

Eitruð og seigfljótandi
Svartolía (HFO) er gríðarlega eitrað seigfljótandi skipaeldsneyti sem brotnar hægt niður í sjávarumhverfinu, einkum á kaldari svæðum eins og Norðurskautinu.

Óviðráðanlegur leki
Ef að mikill svartolíuleki á sér stað kunna takmarkaðar vegasamgöngur, ókannað hafsvæði, erfiðar veðuraðstæður og siglingahætta á borð við hafís að gera hreinsunaraðgerðir nánast ómögulegar.

Hætta fyrir frumbyggja
Svartolíunotkun er hættuleg fyrir marga frumbyggja Norðurskautssvæðisins sem reiða sig á auðlindir sjávar fyrir næringar-, menningar- og efnahagstengdar þarfir.

Skaðleg mengunarefni
Svartolía myndar mikið af skaðlegum mengunarefnum á borð við brennisteinsoxíð, köfnunarefnisoxíð og kinrok, sem öll hafa verið tengd við aukna hættu á hjarta- og lungnasjúkdómum sem og ótímabær dauðsföll. Ef farið væri að nota eimað eldsneyti með litlu magni af brennistein myndi losun á kinroki minnka um 30-80%.

Hraðari hlýnun
Kinrok hefur skert áhrif á loftslagsbreytingar þegar það er losað á hárri breiddargráðu. Hlýnunaráhrifin aukast að minnsta kosti þrefalt á Norðurskautssvæðinu samanborið við losun á hafi úti. Þetta stafar af því að í andrúmsloftinu taka agnir kinroks í sig geislunina að ofan sem og endurkastaða geislun að neðan, þannig tvöfaldan hlýnunaráhrifin.

Sjálfsstyrkjandi hringrás hlýnunar
Þegar agnir kinroks falla á snjó og ís Norðurskautsins dreifist geislunin frá snjónum og ísnum og lendir og uppsöfnuðum ögnum kinroks og valda frekari hlýnun. Einnig minnkar það magn sólarljóss sem endurkastast aftur út í geim. Bráðnun snjós og íss verður hraðari og þannig eykst stækkað yfirborðssvæði útsetts hafs sem er dökkur. Þannig er stuðlað að sjálfsstyrkjandi hringrásar hlýnunar af mannavöldum.

Lausnir
Í dag er svartolía notuð við tvennskonar athafnir á Norðurskautinu. Svartolía er notuð sem skipaeldsneyti fyrir skip sem sigla um Norðurskautssvæðið. Einnig nota sum samfélög á Norðurskautinu svartolíu til að hita upp heimili sín og knýja búnað. Þegar þessi notkun er höfð í huga þarf að beita tveimur aðskildum nálgunum við að draga úr þeirri hættu sem svartolíunotkun hefur í för með sér á Norðurskautssvæðinu:
Tekist á við hættuna sem tengist svartolíu sem skipaeldsneyti
Best er að hætta í áföngum að nota og flytja svartolíu sem eldsneyti á Norðurskautssvæðinu til að draga úr margskonar afleiðingum svartolíuleka og minnka skaðlega losun á svæðinu. Ef til dæmis er hætt að nota svartolíu og farið að nota annað eldsneyti á borð við eimað eldsneyti með litlu magni af brennistein er áætlað að draga megi úr losun kinroks um 30%.
Tekist á við hættuna sem tengist farmflutningi á svartolíu
Þar sem sum samfélög Norðurskautsins reiða sig á svartolíu við notkun á heimilum leggur Clean Arctic Alliance ekki þessa stundina áherslu á farmflutning svartolíu. Íhuga þarf þó farmflutning á svartolíu í framtíðinni svo hægt sé að takast á við hættuna samfara svartolíuleka á Norðurskautinu.
Áhrifaríkasta leiðin við að draga úr hættu er sú að hætta í áföngum að nota svartolíu sem skipaeldsneyti og er hún í forgangi á þessari stundu. Þess vegna ætti Alþjóðasiglingamálastofnunin, sem er viðeigandi alþjóðastofnun sem stýrir notkun og flutning á svartolíu, að innleiða lagalega bindandi verkfæri til að hætta í áföngum svartolíunotkun sem skipaeldsneyti á Norðurskautssvæðinu fyrir árið 2020.